Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 11. mars 2024 08:12
Elvar Geir Magnússon
Man Utd hyggst gera risatilboð í Neves - De Zerbi á blaði hjá Liverpool
Powerade
Joao Neves á bjarta framtíð.
Joao Neves á bjarta framtíð.
Mynd: Getty Images
Roberto De Zerbi.
Roberto De Zerbi.
Mynd: EPA
Neves, Kane, De Zerbi, Kimmich, Tierney, Mainoo. Vonandi var helgin góð og nú tekur við ný vinnuvika, og nóg af slúðri!

Sir Jim Ratcliffe ætlar að samþykkja að Manchester United geri yfir 100 milljóna punda tilboð í portúgalska miðjumanninn Joao Neves (19) hjá Benfica. (Mirror)

United mun gera allt sem hægt er til að fá sóknarmanninn Harry Kane (30) ef hann verður fáanlegur hjá Bayern München í sumar. (Give Me Sport)

Luis Enrique stjóri Paris St-Germain staðfesti að Kylian Mbappe (25) væri á förum með því að óska honum alls hins besta í framtíðinni eftir að hafa látið hann byrja á bekknum í 2-2 jafntefli gegn Reims í gær. (Goal)

Liverpool er með Roberto De Zerbi stjóra Brighton, Julian Nagelsmann landsliðsþjálfara Þýskalands og Ruben Amorim stjóra Sporting Lissabon á blaði yfir aðila sem gætu tekið við af Jurgen Klopp. (Football Insider)

Þýski miðjumaðurinn Joshua Kimmich (29) sem hefur verið orðaður við Manchester United, Manchester City og Liverpool hefur ekki enn fundað með Bayern München um nýjan samning en það eru innan við 18 mánuðir eftir af gildandi samningi hans. (90min)

Arsenal er tilbúið að selja bakvörðinn Kieran Tierney (26) í sumar en vill fá 20 milljónir punda fyrir skoska varnarmanninn. (Give Me Sport)

Chelsea hefur ekki tekið ákvörðun um framtíð Conor Gallagher (24) en Tottenham hefur áhuga á enska miðjumanninum. (Caught Offside)

Chelsea gæti horft til þess að selja allt að fimmtán leikmenn í sumarglugganum. (Football.London)

Manchester United hyggst þrefalda laun enska miðjumannsins Kobbie Mainoo (18), innan við ári eftir að hann skrifaði undir samning. Nýja samningstilboið er til 2030. (Sun)

AC Milan er áfram í viðæðum við Arsenal um pólska varnarmanninn Jakub Kiwior (24). (Fichajes)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner