Riðlakeppni Lengjubikarsins er að baki og undanúrslitin eru framundan en þar mætast þau fjögur lið sem unnu riðlana.
Á fimmtudag leikur Þór gegn Breiðabliki fyrir norðan og sagði Halldór Árnason þjálfari Blika í útvarpsþættinum Fótbolti.net að hann myndi mæta með öflugt lið í leikinn.
Leikurinn er skráður í Bogann en Halldór segist vonast til þess að leikurinn verði færður og leikið utandyra. Boginn hefur verið mikið í umræðunni og lið verið að mæta með varalið norður.

Hinn undanúrslitaleikurinn er milli Vals og ÍA og verður hann leikinn á Hlíðarenda á miðvikudagskvöldið í næstu viku.
Áætlað er að úrslitaleikurinn verði spilaður miðvikudaginn 27. mars.
Undanúrslit Lengjubikarsins:
fimmtudagur 14. mars
16:30 Þór-Breiðablik (Boginn)
miðvikudagur 20. mars
19:15 Valur - ÍA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Athugasemdir