Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 11. maí 2021 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Lille vill fá Nübel frá Bayern - Maignan á förum?
Alexander Nübel
Alexander Nübel
Mynd: Getty Images
Franska félagið Lille vill fá Alexander Nübel, markvörð Bayern München, á tveggja ára láni en Loic Tanzi hjá RMC Sport sagði frá þessu á frönsku útvarpsstöðinni í gær.

Nübel er 24 ára gamall og er einn af bestu markvörðum Þýskalands en hann hefur þó fengið fá tækifæri hjá Bayern.

Manuel Neuer hefur verið aðalmarkvörður Bayern síðasta áratuginn og er ekki búist við því að það breytist næstu tvö árin.

Samkvæmt RMC Sport þá hefur Lille mikinn áhuga á að fá Nübel á láni næstu tvö árin en Bayern hefur engan áhuga á að selja markvörðinn.

Þessi áhugi Lille gæti þýtt það að Mike Maignan er á förum til AC Milan í sumar en ítalska félagið hefur verið í viðræðum við Maignan síðustu vikur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner