Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. júní 2022 17:56
Brynjar Ingi Erluson
3. deild: Sindri á toppinn - Skoraði þrennu og kom ÍH af botninum
Sindri er komið á toppinn
Sindri er komið á toppinn
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
ÍH er komið upp úr botnsæti deildarinnar
ÍH er komið upp úr botnsæti deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Sindri er á toppnum í 3. deild karla eftir 4-2 sigur á Elliða í dag og þá er ÍH komið upp úr botnsæti deildarinnar eftir 4-0 sigur á Augnabliki en Arnar Sigþórsson gerði þrennu fyrir heimamenn.

Víðir var í 6. sæti deildarinnar fyrir leikina í dag en liðið var ekki i neinum vandræðum með Kormák/Hvöt er liðið kom í heimsókn í Hafnarfjörðinn í dag.

Leiknum lauk með 5-1 sigri Víðis sem er nú með 12 stig í 2. sæti deildarinnar.

Arnar Sigþórsson skoraði þrennu fyrir ÍH sem vann Augnablik 4-0 en liðið var 3-0 yfir í hálfleik áður en Arnar fullkomnaði þrennuna í upphafi síðari hálfleiks.

ÍH fer því upp úr botnsætinu og er með 3 stig, jafnmörg og KH sem er með slakari markatölu.

Sindri vann þá Elliða 4-2 og skaut sér á toppinn í deildinni með 13 stig. Kári lagði KFG 2-0 þar sem Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson gerði bæði mörk Káramanna í síðari hálfleiknum.

Úrslit og markaskorarar:

ÍH 4 - 0 Augnablik
1-0 Arnar Sigþórsson ('28 )
2-0 Baldur Kári Helgason ('42 )
3-0 Arnar Sigþórsson ('45 , Mark úr víti)
4-0 Arnar Sigþórsson ('46 )

Víðir 5 - 1 Kormákur/Hvöt
1-0 Jóhann Þór Arnarsson ('44 )
2-0 Arnór Björnsson ('52 )
2-1 Ingvi Rafn Ingvarsson ('58 )
3-1 Atli Freyr Ottesen Pálsson ('68 )
4-1 Stefán Birgir Jóhannesson ('73 )
5-1 Ísak John Ævarsson ('90 )

Sindri 4 - 2 Elliði
1-0 Abdul Bangura ('5 )
1-1 Pétur Óskarsson ('22 )
2-1 Mate Paponja ('55 , Mark úr víti)
3-1 Kristinn Justiniano Snjólfsson ('67 )
4-1 Hermann Þór Ragnarsson ('72 )
4-2 Pétur Óskarsson ('90 )
Rautt spjald: Guðmundur Reynir Friðriksson , Sindri ('90)

Kári 2 - 0 KFG
1-0 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('50 )
2-0 Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson ('81 )
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner