Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. september 2021 18:01
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Man Utd og Newcastle: Ronaldo bestur
Cristiano Ronaldo skoraði tvö í í endurkomunni
Cristiano Ronaldo skoraði tvö í í endurkomunni
Mynd: EPA
Cristiano Ronaldo var besti maður vallarins er Manchester United vann Newcastle United 4-1 á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Portúgalinn var að spila fyrsta leik sinn fyrir United í tólf ár og fagnaði því með marki undir lok fyrri hálfleiks. Woodman varði boltann út í teiginn á Ronaldo sem skoraði örugglega áður en hann bætti við öðru í þeim síðari.

Luke Shaw stakk boltanum inn fyrir á Ronaldo sem klobbaði Woodman. Ronaldo fær 8 fyrir frammistöðuna í dag en Bruno Fernandes fær einnig 8. Woodman fær 4.

Man Utd: De Gea (6), Wan-Bissaka (6), Varane (6), Maguire (6), Shaw (7), Matic (6), Pogba (7), Fernandes (8), Greenwood (7), Ronaldo (8), Sancho (6)
Varamenn: Lingard (7)

Newcastle: Woodman (4), Manquillo (7), Hayden (6), Lascelles (6), Clark (6), Ritchie (6), Longstaff (6), Willock (7), Almiron (7), Joelinton (6), Saint-Maximin (7)
Varamenn: Murphy (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner