Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 11. september 2021 11:00
Victor Pálsson
Tuchel staðfestir áhuga Chelsea á Kounde
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, hefur staðfest það að félagið hafi reynt við Jules Kounde, leikmann Sevilla, í sumar.

Kounde var ofarlega á óskalista Chelsea en enska liðinu mistókst að krækja í hann áður en glugginn lokaði.

Búist var við að Kounde myndi ganga í raðir Chelsea á lokadegi félagaskiptagluggans á sama tíma og liðið fékk Saul frá Atletico Madrid.

„Það var augljóst að við reyndum við Kounde og Saul en þetta gerðist mjög, mjög seint. Glugginn gekk í heildina litið mjög vel fyrir sig," sagði Tuchel.

Chelsea náði aldrei samkomulagi við Sevilla um kaupverð en Kounde vildi mikið semja við Evrópumeistarana.

Athugasemdir
banner
banner