Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 11. september 2021 18:42
Brynjar Ingi Erluson
Uppselt á leik Breiðabliks og Vals
Breiðablik spilar við Val á Kópavogsvelli
Breiðablik spilar við Val á Kópavogsvelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Uppselt er á stórleik Breiðabliks og Vals í Pepsi Max-deild karla í kvöld en leikurinn fer fram á Kópavogsvelli klukkan 20:00.

Liðin eigast við í toppbaráttuslag í Kópavogi en alls voru 1200 miðar til sölu í sex hólfum á leikinn.

Það er uppselt en fyrir þá sem náðu ekki að tryggja sér miða geta horft á leikinn í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.

Blikar eru eins og staðan er núna í öðru sæti með 41 stig en Valur í fimmta sæti með 36 stig.

Víkingur R. er að vinna HK 3-0 og tekur því toppsætið.
Athugasemdir
banner
banner
banner