Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 12. mars 2021 19:35
Brynjar Ingi Erluson
Di Maria framlengir við PSG
Angel Di Maria verður áfram hjá PSG
Angel Di Maria verður áfram hjá PSG
Mynd: Getty Images
Argentínski vængmaðurinn Angel Di Maria hefur framlengt samning sinn við Paris Saint-Germain til ársins 2022.

Di Maria, sem er 33 ára gamall, hefur skorað 5 mörk og lagt upp önnur 12 fyrir PSG í öllum keppnum á þessari leiktíð en samningur hans átti að renna út í sumar.

Hann hefur nú gert eins árs framlengingu við félagið og gildir því samningurinn til ársins 2022 með möguleika á að framlengja um annað ár.

Di Maria kom til félagsins frá Manchester United árið 2015 og hefur síðan þá verið mikilvægur partur af liðinu.

Leikmaðurinn hefur spilað hátt í 250 leiki fyrir félagið og skorað 87 mörk en hann hefur einnig spilað fyrir Real Madrid, Benfica og Rosario Central.
Athugasemdir
banner
banner