Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 12. júní 2022 15:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild kvenna: ÍA komið á blað eftir sigur á Einherja
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einherji 0-2 ÍA
0-1 Bryndís Rún Þórólfsdóttir ('28 )
0-2 Unnur Ýr Haraldsdóttir ('80 )


Einherji fékk ÍA í heimsókn á Vopnafjarðarvöll í 2. deild kvenna í dag. Bæði lið vonuðust eftir fyrsta sigrinum í sumar.

Gestirnir fóru með forystu inn í klefa í hálfleik en Bryndís Rún Þórólfsdóttir fyrirliði ÍA skoraði eina mark fyrri hálfleiksins eftir tæplega hálftíma leik.

Það var síðan undir lok leiksins sem annað markið kom en þar var að verki Unnur Ýr Haraldsdóttir sem skoraði annað mark ÍA og tryggði liðinu stigin þrjú.

Þetta var aðeins annar leikur ÍA í mótinu en liðið tapaði gegn Fram í fyrstu umferð. Einherji hefur tapað öllum þremur leikjunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner