Bersant Celina er ungur miðjumaður Swansea sem hefur verið að gera fína hluti með liðinu eftir komu sína frá Manchester City í fyrra,
Celina var í byrjunarliðinu fyrr í kvöld þegar Svanirnir heimsóttu West Brom í Championship deildinni og voru þeir 1-0 undir þegar dómarinn dæmdi vítaspyrnu.
Celina steig einbeittur á punktinn og tók tilhlaup en mislukkaðist skottæknin því hann flækti saman fótum og spyrnti knettinum óvart í ranga átt.
Sjón er sögu ríkari og er hægt að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan. West Brom stóð uppi sem sigurvegari að lokum, 3-0.
❌PENALTY MISS!
— Sky Sports Football (@SkyFootball) March 13, 2019
🙊Bersant Celina fluffs his lines in spectacular style. pic.twitter.com/fkXSRrJhJ4
Athugasemdir