Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. apríl 2019 16:14
Arnar Helgi Magnússon
Mjólkurbikarinn: Þrenna í fyrsta leik með Haukum - Kórdrengir gerðu sjö
Sadat gerði þrennu
Sadat gerði þrennu
Mynd: Hulda Margrét
Úr leik Dalvíkur/Reynis og Samherja
Úr leik Dalvíkur/Reynis og Samherja
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Átta leikjum var nú að ljúka í 1. umferð Mjólkurbikarsins. Framlengt er í leik Nökkva og KF.

Eitt lið úr Inkasso-deildinni var í eldlínunni í dag en það voru Haukar sem að fengu KFS í heimsókn. Hafnfirðingar komust yfir strax á fimmtu mínútu leiksins en það var nýjasti leikmaður liðsins, Fareed Sadat sem að gerði það.

Gestirnir náðu að jafna stuttu síðar en þá settu Haukarnir í annan gír og skoruðu fjögur mörk áður en að flautað var til hálfleiks. Sadat bætti við tveimur og var því kominn með þrennu fyrir hálfleik. Benedikt Októ klóraði í bakkann fyrir KFS í síðari hálfleik en lengra komust gestirnir ekki, lokatölur 5-2.

Vestri vann nauman sigur á Víðismönnum en eina mark leiksins skoraði Pétur Bjarnason úr vítaspyrnu. Kórdrengir fóru illa með KM en lokatölur þar urðu 7-0. Það sama má segja um Augnablik sem að mætti Árborg. Gestirnir að sunnan sáu aldrei til sólar og lauk leiknum með 8-1 sigri Augnabliks.

Hér að neðan má sjá úrslit dagsins í Mjólkurbikarnum.

Vestri 1 - 0 Víðir
1-0 Pétur Bjarnason, víti ('55 )

Dalvík/Reynir 6 - 0 Samherjar
1-0 Viktor Daði Sævaldsson ('15 )
2-0 Borja Lopez ('40 )
3-0 Gunnlaugur Bjarnar Baldursson ('65 )
4-0 Atli Fannar Írisarson, víti ('71 )
5-0 Borja Lopez ('88 )
6-0 Pálmi Heiðmann Birgisson ('90 )

Tindastóll 5 - 0 Æskan
1-0 Arnar Ólafsson ('14 )
2-0 Hafsteinn Ingi Magnússon ('27 )
3-0 Hafsteinn Ingi Magnússon ('30 )
4-0 Hafsteinn Ingi Magnússon ('58 )
5-0 Hafsteinn Ingi Magnússon ('60 )

Sindri 5 - 1 Leiknir F.
0-1 Marteinn Már Sverrisson ('21 )
1-1 Þorlákur Helgi Pálmason ('33 )
2-1 Kristinn Justiano Snjólfsson ('43 )
3-1 Mykolas Krasnovskis ('77 )
4-1 Mykolas Krasnovskis ('77 )
5-1 Mate Paponja ('90 )

Haukar 5 - 2 KFS
1-0 Fareed Sadat ('5 )
1-1 Benedikt Októ Bjarnason ('7 )
2-1 Birgir Magnús Birgisson ('11 )
3-1 Fareed Sadat ('19 )
4-1 Fareed Sadat ('25 )
5-1 Sean De Silva (' 27 )
5-2 Benedikt Októ Bjarnason ('74 )

Augnablik 8 - 1 Árborg
1-0 Breki Barkarson ('22)
2-0 Guðjón Gunnarsson ('24)
3-0 Hrannar Bogi Jónsson ('40)
4-0 Breki Barkarson ('62)
5-0 Hrannar Bogi Jónsson ('72)
6-0 Bjarki Freyr Guðmundsson ('77)
6-1 Sigurður Eyberg Guðlaugsson ('83)
7-1 Magnús Aron Sigurðsson ('88)
8-1 Bjarki Freyr Guðmundsson ('90)

Höttur/Huginn 3 - 1 Einherji
1-0 Halldór Bjarki Guðmundsson
2-0 Ivan Bubalo ('48 )
3-0 Rúnar Freyr Þórhallsson ('56 )

Kórdrengir 7 - 0 KM
1-0 Aron Skúli Brynjarsson ('12 )
2-0 Einar Orri Einarsson ('26 )
3-0 Davíð Birgisson, víti ('56 )
4-0 Aron Skúli Brynjarsson ('66 )
5-0 Magnús Þórir Matthíasson ('69 )
6-0 Aron Skúli Brynjarsson ('87 )
7-0 Davíð Birgisson ('90 )

Nökkvi 2 - 4 KF (Eftir framlengingu)
1-0 Jón Friðrik Þorgrímsson ('40 )
2-0 Davíð Rúnar Bjarnason, víti ('56 )
1-2 Aðalbjörn Hannesson, sjálfsmark ('61 )
2-2 ('87 )
2-3 Óliver Jóhannsson ('110)
2-4 Grétar Áki Bergsson, víti (' 117)
Athugasemdir
banner
banner