Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. júlí 2018 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp um Shaqiri: Vorum klókir og brugðumst við
Klopp og Shaqiri í góðu skapi.
Klopp og Shaqiri í góðu skapi.
Mynd: Liverpool
Mynd: Liverpool
Jurgen Klopp er hæstánægður með viðskipti kvöldsins. Liverpool gekk frá kaupum á svissneska landsliðsmanninum Xherdan Shaqiri.

Shaqiri kemur frá Stoke en eftir að Stoke féll úr ensku úrvalsdeildinni birtist riftunarverð í samningi Shaqiri upp á 13,5 milljónir punda. Liverpool nýtti sér það og Klopp segir að það sé merki um klókindi þeirra sem vinna hjá félaginu.

„Þegar einhver eins og hann er fáanlegur á þennan hátt þá verðurðu að bregðast við, ef þú ert klókur. Við brugðumst við," sagði Klopp við heimasíðu Liverpool.

„Getur breytt miklu fyrir okkur"
„Hann er hraður og hefur góða eiginleika, hann er hrokafullur á fótboltavellinum upp að réttu magni, hann er hugrakkur að vilja boltann og hafa áhrif á hlutina. Þetta eru skyldukröfur ef þú vilt spila fyrir okkur."

„Þetta er rétta skrefið fyrir hann og frá okkar sjónarhorni er hann leikmaður sem getur breytt miklu fyrir okkur vegna þess að hann getur spilað svo margar stöður í okkar kerfi. Hann veitir okkur meiri breidd og meiri fjölbreytileika sem er gott."

Klopp þekkir Xhaqiri vel úr þýska boltanum, en þar lék þessi 26 ára gamli leikmaður Bayern München. Klopp er fyrrum þjálfari erkifjenda Bayern í Dortmund.

„Ég þekki hann vel frá tíma hans í Sviss og sérstaklega frá tíma hans í Þýskalandi - ég hef lengi verið aðdáandi hans. Það er aukinn bónus fyrir okkur að hann þekkir ensku úrvalsdeildina og hvernig á að ná árangri í þessu umhverfi. Hann spilaði líka vel á HM og kemur til okkar fullur sjálfstrausts."

„Að lokum tel ég Xherdan muni falla vel inn í hópinn sem persóna. Hann er með góðan persónuleika og drifkraft, hann er einhver sem mun fá aukinn kraft þegar jákvæðir straumar berast frá stuðningsmönnum okkar. Strákarnir munu hjálpa honum að aðlagast eins fljótt og hægt er."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner