Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 14. mars 2024 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ásgeir Helgi framlengir við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Helgi Orrason er búinn að framlengja samning sinn við Breiðablik og verður hjá félaginu næstu fjögur árin, eða út keppnistímabilið 2027.

Ásgeir Helgi er aðeins 18 ára gamall en hann verður 19 ára í maí og þykir gríðarlega mikið efni.

Hann tók þátt í fimm leikjum í Bestu deildinni í fyrra og skoraði eitt mark, en auk þess á hann átta leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands. Hann er partur af sterku U19 landsliði sem stendur.

Ásgeir er uppalinn hjá Breiðablik og hefur í heildina spilað 12 KSÍ-leiki fyrir meistaraflokk.


Athugasemdir
banner
banner
banner