Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 14. mars 2024 18:45
Ívan Guðjón Baldursson
Hlynur Freyr og Hilmir Rafn í byrjunarliðum
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Það komu tveir Íslendingar við sögu í æfingaleikjum norskra liða í dag, þar sem Haugesund lagði Asane að velli á meðan Rosenborg og Kristiansund skildu jöfn.

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfar Haugesund og var Hlynur Freyr Karlsson í byrjunarliðinu í 2-1 sigri gegn Asane í dag.

Hlynur Freyr, sem er aðeins 19 ára gamall, komst ekki á blað og þá var Anton Logi Lúðvíksson ekki í hópnum.

Hilmir Rafn Mikaelsson var þá í byrjunarliði Kristiansund í 2-2 jafntefli gegn Rosenborg. Brynjólfur Andersen Willumsson var ekki í hóp hjá Kristiansund, ekki frekar en Ísak Snær Þorvaldsson hjá Rosenborg.

Haugesund 2 - 1 Asane

Rosenborg 2 - 2 Kristiansund

Athugasemdir
banner
banner
banner