Meiðsli Anthony Gordon leikmanns Newcastle eru ekki alvarleg og hann gæti spilað gegn Manchester City í 8-liða úrslitum FA-bikarsins á morgun. Eddie Howe stjóri Newcastle greindi frá þessu á fréttamannafundi í morgunsárið.
Gordon meiddist í 3-2 tapi Newcastle gegn Chelsea síðasta mánudag og óttast var að meiðslin væru slæm. Gordon gat hinsvegar æft í gær og ef hann kemst í gegnum æfingu í dag verður hann með í leiknum á morgun.
Gordon hefur átt mjög gott tímabil og var verðlaunaður með landsliðssæti hjá enska landsliðinu í gær.

Harvey Barnes verður hinsvegar ekki með Newcastle á morgun en Howe vonast til þess að hann geti spilað gegn West Ham í lok mánaðarins. Barnes meiddist aftan í læri í 3-0 sigri gegn Wolves fyrr í þessum mánuði.
Leikur Manchester City og Newcastle verður klukkan 17:30 á morgun, laugardag.
Athugasemdir