Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 15. mars 2024 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Selma kláraði Víking R.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Víkingur R. 2 - 4 FH
0-1 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('17 )
0-2 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir ('26 )
1-2 Bergdís Sveinsdóttir ('50 )
1-3 Selma Sól Sigurjónsdóttir ('52 )
2-3 Nadía Atladóttir ('75 )
2-4 Selma Sól Sigurjónsdóttir ('88 )

Víkingur R. og FH áttust við í Lengjubikar kvenna í kvöld og úr varð spennandi slagur, þar sem gestirnir úr Hafnarfirði leiddu með tveggja marka forystu í leikhlé.

Berglind Freyja Hlynsdóttir og Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir skoruðu mörk FH-inga í fyrri hálfleik en Bergdís Sveinsdóttir minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik.

Það leið þó ekki á löngu þar til FH tvöfaldaði forystuna á ný, en í þetta sinn var Selma Sól Sigurjónsdóttir á ferðinni.

Nadía Atladóttir minnkaði muninn aftur niður í eitt mark fyrir Víking R. og var lokakafli leiksins spennandi, allt þar til á 88. mínútu þegar Selma skoraði sitt annað mark til að innsigla sigur FH.

FH lýkur keppni með níu stig úr fimm umferðum á meðan Víkingur endar með sex stig.
Athugasemdir
banner
banner