Það eru tveir leikir í Reykjavíkurmótinu í dag, og einn leikur í Kjarnafæðismótinu.
Klukkan 19:00 er Breiðholtsslagur í Reykjavíkurmótinu. Leiknir mætir sínum helstu erkifjöndum í ÍR og verður athyglisvert að sjá hvernig sá leikur spilast.
Þegar sá leikur er búinn mætast Fjölnir og Íslandsmeistarar Vals. Fjölnir hefur unnið báða leiki sína hingað til, en Valur hefur unnið eina leikinn sem þeir hafa spilað hingað til.
Í Kjarnafæðismótinu mætast KA 3 og Dalvík/Reynir í B-deild. KA 3 tapaði sínum fyrsta leik gegn KF 4-0 á meðan Dalvík/Reynir vann 2-0 sigur gegn Þór 2.
Reykjavíkurmót karla - A riðill
19:00 Leiknir R. - ÍR (Egilshöll)
21:00 Fjölnir - Valur (Egilshöll)
Kjarnafæðismót - B deild
20:15 KA 3 - Dalvík/Reynir (Boginn)
Athugasemdir