Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Howe: Getum ekki gert stórar breytingar á hópnum
Mynd: Newcastle United
Eddie Howe, þjálfari Newcastle United, svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær fyrir stórleik liðsins í 8-liða úrslitum FA bikarsins gegn ríkjandi meisturum Manchester City.

Stórleikurinn fer fram í dag, þar sem Newcastle heimsækir Etihad Stadium.

Hér mætast tvö af ríkustu félögum ensku úrvalsdeildarinnar og víðar, en það hefur komið á óvart hversu langan tíma það virðist ætla að taka fyrir Newcastle að gera stórtækar breytingar á sínum leikmannahópi vegna fjármálareglna ensku úrvalsdeildarinnar og evrópska fótboltasambandsins.

„Það verður ómögulegt fyrir okkur að gera stórar breytingar á hópnum í sumar. Það er einfaldlega ekki hægt að gera það og á sama tíma standast kröfur um háttvísisreglur þegar kemur að fjármálum," segir Howe.

„Þó að við seljum leikmann úr hópnum þá þurfum við að nota peninginn sem við fáum fyrir hann til að kaupa annan leikmann til að fylla í skarðið. Við munum kaupa og selja einhverja leikmenn en ég veit ekki hversu mikið það verður. Ég er ekki að búast við miklu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner