Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2024 16:00
Aksentije Milisic
U16 ára lið karla skoraði sex gegn Færeyjum
Mynd: KSÍ

Ísland 6-0 Færeyjar
Mörk Íslands: Tómas Óli Kristjánsson (2), Björgvin Brimi Andrésson (2), Sölvi Snær Ásgeirsson og sjálfsmark.

Ísland mætti Færeyjum á UEFA Development Tournament á Gíbraltar í dag en leiknum lauk með auðveldum sigri Íslands.


Þetta er annar sigur hjá Íslenska landsliðinu á mótinu en fyrsta leiknum lauk með 4-0 sigri gegn Gíbraltar.

Björgvin Brimi Andrésson skoraði tvennu en hann er yngri bróðir Benónýs Breka Andréssonar, leikmanns KR. Tómas Óli Kristjánsson gerði einnig tvennu og þá skoraði Sölvi Snær Ásgeirsson eitt mark. Eitt markanna var síðan sjálfsmark hjá Færeyjum.

Lokaleikur liðsins á mótinu verður gegn Litháen á þriðjudaginn kemur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner