Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 16. ágúst 2018 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Diego Costa: Með punginn til að vinna hvern sem er
Mynd: Getty Images
Diego Costa var hetja Atletico Madrid er liðið hafði betur gegn nágrönnunum í Real í úrslitaleik Ofurbikars Evrópu í gærkvöldi.

Diego Costa skoraði bæði mörk Atletico í venjulegum leiktíma en leiknum lauk með 2-2 jafntefli svo grípa þurfti til framlengingar.

Atletico var betri aðilinn í framlengingunni og tryggði sér góðan sigur með mörkum frá Saul og Koke.

„Við erum með sigurþránna og punginn sem þarf til þess að geta unnið hvaða lið sem er í heiminum," sagði Costa að leikslokum.

„Þeir unnu tvo úrslitaleiki gegn okkur þannig við vildum vinna úrslitaleik í Evrópukeppni gegn þeim. Þetta var mjög mikilvægur sigur sem fyllir okkur af sjálfstrausti fyrir tímabilið."
Athugasemdir
banner
banner