Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 17. mars 2021 11:00
Magnús Már Einarsson
Zlatan með gegn Manchester United
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, framherji AC Milan, hefur jafnað sig af meiðslum og er klár í slaginn fyrir leikinn gegn gömlu félögunum í Manchester United annað kvöld.

Zlatan hefur misst af síðustu fjórum leikjum AC Milan vegna meiðsla og hann var fjarri góðu gamni í 1-1 jafnteflinu gegn Manchester United á Old Trafford í síðustu viku.

Reynsluboltinn æfði á ný í gær og byrjar væntanlega á varamannabekknum á morgun.

Hinn 39 ára gamli Zlatan hefur verið í stuði á tímabilinu en í gær var tilkynnt um endurkomu hans í sænska landsliðið eftir fimm ára hlé.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner