Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. mars 2024 10:40
Aksentije Milisic
Myndband: Kristall Máni smurði hann í fjær gegn Helsingör
Mynd: Sönderjyske

Kristall Máni Ingason skoraði eitt og lagði upp annað þegar Sönderjyske vann 2-0 sigur á Helsingör í næst efstu deild í Danmörku í gær.


 Daníel Leó Grétarsson var einnig á skotskónum í leiknum en Sönderjyske endaði í öðru sæti deildarinnar þegar hefðbundinni deildarkeppni lauk. Nú mun deildin tvískiptast.

Markið sem Kristall skoraði í gær var einkar smekklegt en hann fékk boltann þá vel fyrir utan teig og smurði kappinn hann glæsilega í fjærhornið með hægrifótar skoti.

Myndband af þessu marki má sjá hér fyrir neðan en Atli Barkarson spilaði einnig í leiknum fyrir Sönderjyske eins og Kristall og Daníel.


Athugasemdir
banner
banner