Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 17. mars 2024 17:00
Aksentije Milisic
Sjáðu atvikið: Klúður tímabilsins hjá Fofana gegn Brentford?
Mynd: Getty Images

Burnley vann sinn fyrsta leik á þessu ári í gær þegar liðið vann Brentford með tveimur mörkum gegn einu í ensku úrvalsdeildinni í gær.


Burnley spilaði manni fleiri nánast allann leikinn en Sergio Reguilon fékk að líta á beint rautt spjald fyrir brot sem aftasti maður. Burnley fékk í kjölfarið vítaspyrnu og komst í forystu.

Í stöðunni 1-0 fyrir Burnley fékk sóknarmaðurinn David Datro Fofana algjört dauðafæri til þess að koma Burnley í tveggja marka forystu fyrir hlé. Hann fékk þá sendingu fyrir markið en á einhvern ótrúlegan hátt þá tókst honum að setja boltann langt framhjá.

Sem betur fer fyrir Fofana og Burnley þá náði hann að skora í síðari hálfleiknum en það mark reyndist sigurmark leiksins. Burnley er hins vegar ennþá í mjög slæmum málum í deildinni.

Þetta ótrúlega klúður hjá Fofana má sjá hér fyrir neðan.

David Datro Fofana (Burnley) incredible open goal miss vs Brentford 43'
byu/Imbasauce insoccer


Athugasemdir
banner
banner
banner