Það er aðeins einn leikur á dagskrá í Copa America í kvöld. Japan tekur þar á móti Síle og verður sýnt beint frá viðureigninni á Stöð 2 Sport.
Japan er ein af tveimur þjóðum utan við Suður-Ameríku sem fékk boðsmiða á mótið. Katar er hin þjóðin og gerði 2-2 jafntefli við Paragvæ í fyrstu umferð.
Liðin mætast í fyrstu umferð í kvöld og er mikið undir þar sem samkeppnin er afar hörð. Úrúgvæ lagði Ekvador að velli, 2-0, í gærkvöldi.
Það eru þrír riðlar í Copa America og komast átta lið í útsláttarkeppnina. Tvö fara beint upp úr hverjum riðli ásamt stigahæstu 3. sætunum.
Leikur kvöldsins:
23:00 Japan - Síle (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir