Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 18. janúar 2023 17:00
Elvar Geir Magnússon
Man City með augastað á Kvaratskhelia
Mynd: Getty Images
Manchester City fylgist með vængmanninum Khvicha Kvaratskhelia, 21 árs leikmanni Napoli. Daily Mail greinir frá þessu.

Georgíski landsliðsmaðurinn hefur þegar skorað níu mörk í fimmtán leikjum fyrir ítalska liðið.

Þá hefur hann verið gríðarlega drjúgur fyrir Georgíu og er með tíu mörk í nítján leikjum.

Kvaratskhelia er fyrrum leikmaður Rubin Kazan og Dinamo Batumi en hann kom í gegnum unglingastarf Dinamo Tbilisi.


Athugasemdir
banner
banner