Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 18. júlí 2021 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona gæti fengið Sanches frá Lille
Renato Sanches er eftirsóttur
Renato Sanches er eftirsóttur
Mynd: Getty Images
Portúgalski miðjumaðurinn Renato Sanches gæti spilað með Barcelona á næstu leiktíð en félaginu stendur til boða að fá hann á láni og kaupa hann svo frá Lille eftir ár. Mundo Deportivo greinir frá.

Sanches spilaði feykivel með Lille í frönsku deildinni á síðasta tímabili er liðið varði meistari og þá var hann með skemmtilega takta fyrir portúgalska landsliðið á Evrópumótinu í sumar.

Stórlið í Evrópu renna hýru auga til hans en Jorge Mendes, umboðsmaður leikmannsins, hefur boðið Barcelona að fá hann í sumar.

Barcelona gæti fengið hann á láni og keypt hann svo ári síðar en hann er þó ekki fremstur í röðinni hjá spænska félaginu. Það kæmi sér þó vel að næla í gæðaleikmann á láni miðað við fjárhagsstöðu þeirra.

Miklar breytingar eru innan herbúða Börsunga og er verið að vinna að því að laga fjárhaginn. Lionel Messi mun skrifa undir nýjan samning á næstu dögum en laun hans munu lækka um helming og þá eru margir leikmenn á útleið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner