Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 19. mars 2021 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lykilmenn skrifa undir hjá Tindastóli
Sverrir Hrafn, Konráð Freyr og Fannar Örn.
Sverrir Hrafn, Konráð Freyr og Fannar Örn.
Mynd: Tindastóll
Lið Tindastóls hefur samið við þrjá lykilmenn fyrir átökin í 3.deild í sumar. Þetta eru þeir Konráð Freyr Sigurðsson, Fannar Örn Kolbeinsson og Sverrir Hrafn Friðriksson.

Konráð Freyr er 25 ára miðjumaður uppalinn á Skaganum og hefur leikið með liði Tindastóls síðan hann flutti á Krókinn 16 ára gamall. Hann hefur fengið það hlutverk að vera fyrirliði liðsins í sumar. Konráð hefur spilað 141 meistaraflokks leiki og hefur skorað 19 mörk í þeim leikjum.

Fannar Örn er 28 ára gamall varnarmaður, uppalinn í Tindastól en skipti yfir til Vals ungur að aldri eða árið 2010. Hann kom aftur til Tindastóls sumarið eftir og lék með þeim til 2016, þá fór hann út í atvinnumennskuna til Þýskalands. Hann spilaði þar í eitt ár. Síðasta tímabil þá skipti hann yfir til Magna en kom síðan í glugganum aftur á Krókinn. Fannar hefur leikið alls 190 leiki í meistaraflokk og skorað 16 mörk í þeim leikjum.

Sverrir Hrafn er 24 ára varnarmaður, uppalinn hjá Einherja á Vopnafirði. Sverrir kom fyrst til Tindastóls sumarið 2018 og spilaði með liðinu tvö sumur, áður en hann skipti aftur yfir til uppeldisklúbbsins Einherja. Sverrir hefur leikið 119 leiki í meistaraflokk og skorað 8 mörk í þeim leikjum.

Það má segja að allir þessir leikmenn séu með mikla reynslu og mun það svo sannarlega nýtast Tindastól í sumar. Drengirnir skrifuðu allir undir eins árs samning.

Tindastóll leikur í 3. deild.

Fréttina skrifaði Eysteinn Ívar Guðbrandsson, fréttaritari Tindastóls.
Athugasemdir
banner
banner