Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 19. mars 2024 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cedric yfirgefur Arsenal í sumar
Cedric Soares.
Cedric Soares.
Mynd: EPA
Portúgalski bakvörðurinn Cedric Soares mun yfirgefa Arsenal í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.

Fabrizio Romano segir frá þessum tíðindum í morgunsárið en hann segir að búið sé að taka ákvörðunina.

Cedric er 32 ára gamall en hann hefur spilað með Arsenal frá 2020. Áður en hann gekk í raðir Arsenal, þá var hann hjá Southampton í fimm ár.

Cedric er alls ekki í stóru hlutverki en á yfirstandandi tímabili hefur hann komið við sögu í fimm leikjum.

Romano segir að mörg félög í Evrópu séu að sýna Cedric áhuga en það verður fróðlegt að sjá hvar hann endar.
Athugasemdir
banner
banner
banner