Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   þri 19. mars 2024 19:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeild kvenna: Chelsea í góðum málum eftir sigur á Ajax
Lauren James
Lauren James
Mynd: Getty Images

Ajax W 0 - 3 Chelsea W
0-1 Lauren James ('19 )
0-2 Sjoeke Nusken ('44 )
0-3 Sjoeke Nusken ('83 )


Chelsea er komið með annan fótinn í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir öruggan sigur á Ajax í Hollandi í kvöld.

Lauren James hefur farið hamförum í ensku deildinni en skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni þegar hún kom liðinu yfir.

Chelsea skoraði annað mark undir lok fyrri hálfleiks en markið var dæmt af þar sem Sjoeke Nusken var í rangstöðu þegar Guro Reiten skoraði. Nusken bætti upp fyrir það stuttu síðar og sá til þess að Chelsea var með tveggja marka forystu í hálfleik.

Húnn bætti þriðja markinu við undir lok leiksins og innsiglaði sigur Chelsea.

Chelsea er því í ansi góðri stöðu fyrir síðari leikinn á Stamford Bridge í næstu viku.


Athugasemdir
banner