Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 19. júní 2019 18:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Di Marzio segir Pogba taka Juventus fram yfir Real Madrid
Mynd: Getty Images
Ítalski fjölmiðlamaðurinn Gianluca Di Marzio segir að Paul Pogba vilji frekar fara til Juventus heldur en Real Madrid.

Pogba sagði nýlega í viðtali í Tókýó að hann væri að hugsa um nýja áskorun eftir þrjú ár hjá Manchester United.

Pogba hefur hvað mest verið orðaður við Juventus og Real Madrid, en samkvæmt Di Marzio þá langar franska landsliðsmanninum að fara aftur til Juventus. Hann lék með Ítalíumeisturunum 2012 til 2016 áður en hann fór til Man Utd.

Juventus er að reyna að finna leið til að standast kröfur Pogba þegar kemur að launum.

Þrátt fyrir að Pogba vilji hugsanlega fara þá vill Ole Gunnar Solskjær halda honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner