Það eru nokkrir Íslendingar sem komu við sögu í leikjum dagsins. Í Noregi lék Bjarni Mark Antonsson til að mynda allan leikinn á miðjunni hjá Start í markalausu jafntefli gegn Stabæk.
Start er í umspilsbaráttu B-deildarinnar og er með sextán stig eftir tíu umferðir.
Í Bandaríkjunum lék Óttar Magnús Karlsson allan leikinn í 1-1 jafntefli Oakland Roots á útivelli gegn San Antonio.
Liðin leika í B-deildinni og er Oakland með 21 stig eftir 18 umferðir, einu stigi frá umspilssæti.
Að lokum byrjaði Alex Þór Hauksson inná í tapi Öster gegn Hammarby í æfingaleik í Svíþjóð á meðan Utsikens og Norrköping skildu jöfn.
Start 0 - 0 Stabæk
San Antonio 1 - 1 Oakland Roots
Öster 1 - 2 Hammarby
Utsikten 1 - 1 Norrköping
Athugasemdir