Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 19. júlí 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Reynir Man Utd við Camavinga undir lok gluggans?
Eduardo Camavinga.
Eduardo Camavinga.
Mynd: Getty Images
The Athletic segir að Manchester United sé með áætlun um að reyna að kaupa Eduardo Camavinga frá Rennes í þessum glugga.

Sagt er að United hyggist gera tilboð seint í glugganum í þeirri von að geta fengið miðjumanninn unga ódýrt.

Camavinga er 18 ára gamall Frakki sem á tólf mánuði eftir af samningi sínum og hefur hafnað framlengingu. Það er talið að Rennes muni á endanum selja hann.

Real Madrid og PSG eru sögð fylgjast með gangi mála og það er talið að Camavinga vilji sjálfur helst spila á Spáni.

Ekkert félag hefur enn gert formlegt tilboð í Camavinga.
Athugasemdir
banner
banner