Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. mars 2024 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Reykjanesbær vann í átta marka leik
Mynd: Raggi Óla
SR 3 - 5 RB
0-1 Recoe Reshan Martin ('11 )
1-1 Isaac Kwateng ('18 )
2-1 Benedikt Svavarsson ('23 )
2-2 Mateusz Jaremkiewicz ('28 )
3-2 Jakob Óli Bergsveinsson ('36 )
3-3 Augusto Colaneri ('38 )
3-4 Augusto Colaneri ('78 )
3-5 Recoe Reshan Martin ('88 )

Skautafélag Reykjavíkur tók á móti Reykjanesbæ í C-deild Lengjubikars karla í Þróttheimum í kvöld.

Úr varð mikil markasúpa þar sem liðin skiptust á að skora í fyrri hálfleik og gengu til búningsklefa í stöðunni 3-3.

Reykjanesbær skoraði tvö mörk í síðari hálfleik til að tryggja sér sigur í átta marka leik.

Recoe Reshan Martin og Augusto Colaneri voru atkvæðamestir með tvennu hvor fyrir gestaliðið.

SR lýkur keppni með 4 stig eftir 5 umferðir á meðan Reykjanesbær endar með 9 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner