Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. júlí 2022 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu spjaldið: Varamarkvörður Spánverja sparkaði í kælibox
Mynd: EPA
England og Spánn áttust við í fyrsta leik 8 liða úrslitana á EM kvenna í kvöld.

England fór með sigur af hólmi eftir að hafa lent undir. Þær jöfnuðu metin með marki á 86. mínútu en tveimur mínútum síðar fékk varamarkvörður Spánverja gult spjald á bekknum.

Spánverjarnir mótmæltu markinu harðlega og vildu meina að það hafi verið brot í aðdragandanum þegar leikmaður Englands gaf varnarmanni olnbogaskot.

Misa, varamarkvörður Spánar brást illa við og sparkaði hressilega í kælibox á hliðarlínunni. Fyrir það gaf dómarinn henni gult spjald. Sparkið má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner