Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   lau 21. júlí 2018 20:51
Ester Ósk Árnadóttir
Brynjar Björn: Sennilega mikilvægasti leikurinn á tímabilinu fyrir okkur
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Hann spilaðist ágætlega framan af í 70 - 75 mínútur. Við fengum ágætis færi í fyrri hálfleik og 2 til 3 í seinni hálfleik," sagði Brynjar Björn eftir 0-1 sigur á móti Magna á Grenivík í dag.

Lestu um leikinn: Magni 0 -  1 HK

Magni gerði harða atlögu að marki HK síðustu 20 mínúturnar.

„Við hefðum geta sett annað og tekið af okkur pressuna en gerðum síðustu 20 mínúturnar erfiðar. Við vorum að hlaupa mikið úr stöðum og vorum svolítið að skapa okkar eigin vandræði í vörninni. Við hefðum geta fengið boltann lengra upp og haldið honum betur. Við þurftum að hafa virkilega fyrir þessu í dag."

HK fer á toppinn með þessum sigri.

„Gríðarlega sáttur með stigin þrjú, erfiður völlur á koma á og þetta er sennilega mikilvægasti leikurinn á tímabilinu fyrir okkur."

HK á Víkingu Ó. á útivelli í næsta leik.

„Víkingur Ó. er með gott lið og góða leikmenn. Þeir hafa verið á ágætis siglingu í síðustu leikjum og náð í góð úrslit. Við hugsum um hann á mánudaginn og undirbúum okkur mjög vel fyrir leikinn."

Hörður og Máni hafa komið til HK í glugganum. 

„Við erum búnir að fá Hörð og Mána. VIð förum yfir það um helgina og kíkjum á það hvort við fáum kannski einn í viðbót."

Viðtalið má sjá heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner