Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 21. ágúst 2019 21:31
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Tokic með tvö í sigri á KFG
Hrvoje Tokic skoraði tvö fyrir Selfoss
Hrvoje Tokic skoraði tvö fyrir Selfoss
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
KFG 1 - 3 Selfoss
0-1 Jökull Hermannsson ('24 )
1-1 Tristan Freyr Ingólfsson ('61 )
1-2 Hrvoje Tokic ('65 )
1-3 Hrvoje Tokic ('70 )

Selfoss er enn í baráttunni um að komast upp í Inkasso-deildina eftir 3-1 sigur á KFG í kvöld.

Jökull Hermannsson kom Selfyssingum yfir á 24. mínútu áður en hinn ungi og efnilegi Tristan Freyr Ingólfsson jafnaði metin á 61. mínútu.

Hrvoje Tokic skoraði svo tvö mörk á fimm mínútna kafla og 3-1 sigur Selfyssinga staðreynd.

Selfoss er í 4. sæti deildarinnar með 29 stig þegar fimm umferðir eru eftir en KFG er í næst neðsta sæti með 15 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner