Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. mars 2024 13:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Landsliðshópurinn - Fanney Inga klár í slaginn
Icelandair
Bryndís Arna Níelsdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir.
Bryndís Arna Níelsdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins, hefur valið hóp sem tekur þátt í fyrstu tveimur leikjunum í undankeppni EM 2025 í apríl.

Ísland hefur leik í undankeppninni gegn Póllandi á Kópavogsvelli föstudaginn 5. apríl. Liðið mætir svo Þýskalandi, í Aachen, þriðjudaginn 9. apríl.

Það er ein breyting frá hópnum sem kláraði síðasta verkefni en Fanney Inga Birkisdóttir er klár í slaginn eftir meiðsli. Hún var í upprunalega hópnum síðast en þurfti að draga sig út vegna meiðsla. Hún kemur aftur inn fyrir Aldísi Guðlaugsdóttur.

Annars er hópurinn sá sami og kláraði síðasta verkefni.

Markverðir:
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik - 11 leikir
Fanney Inga Birkisdóttir - Valur - 1 leikur
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving - Stjarnan - 1 leikur

Útileikmenn:
Guðný Árnadóttir - Kristianstads DFF - 26 leikir
Ingibjörg Sigurðardóttir - MSV Duisburg - 59 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir - FC Bayern Munich - 122 leikir, 10 mörk
Guðrún Arnardóttir - FC Rosengard - 35 leikir, 1 mark
Natasha Moraa Anasi - SK Brann - 5 leikir, 1 mark
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Valerenga - 7 leikir
Sandra María Jessen - Þór/KA - 38 leikir, 6 mörk
Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur - 9 leikir, 1 mark
Alexandra Jóhannsdóttir - ACF Fiorentina - 41 leikur, 5 mörk
Hildur Antonsdóttir - Fortuna Sittard - 12 leikir, 1 mark
Lára Kristín Pedersen - Fortuna Sittard - 3 leikir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayer Leverkusen - 37 leikir, 9 mörk
Selma Sól Magnúsdóttir - 1. FC Nürnberg - 36 leikir, 4 mörk
Amanda Jacobsen Andradóttir - Valur - 18 leikir, 2 mörk
Bryndís Arna Níelsdóttir - Vaxjö DFF - 4 leikir, 1 mark
Sveindís Jane Jónsdóttir - VfL Wolfsburg - 34 leikir, 9 mörk
Hlín Eiríksdóttir - Kristianstads DFF - 34 leikir, 4 mörk
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby - 11 leikir, 1 mark
Diljá Ýr Zomers - OH Leuven - 11 leikir, 1 mark
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir - Breiðablik - 6 leikir, 2 mörk
Athugasemdir
banner
banner