Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. júní 2019 07:00
Oddur Stefánsson
Heimild: Football Italia 
Inter búið að semja við Sensi
Mynd: Getty Images
Inter hefur náð samkomulagi við Sassuolo upp á allt að 30 milljónir evra fyrir Stefano Sensi.

Football Italia greinir frá því að Inter muni borga fimm milljónir evra til að fá leikmanninn á láni með möguleika á að kaupa hann fyrir 22 - 25 milljónir evra.

Inter gekk frá kaupum á Matteo Politano á svipaðan máta fyrir síðasta tímabil fyrir 18 milljónir evra.

Koma Stefnao myndi ekki hafa áhrif á kaupin á Nicolo Barella leikmanni Cagliari sem hefur verið sterklega orðaður við Inter

Greint er frá því að Stefano sé staðráðinn í því að ganga í raðir Inter þrátt fyrir áhuga frá Roma, PSG og Milan.
Athugasemdir
banner
banner