Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 22. júní 2020 21:46
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Dybala og Ronaldo á skotskónum í sigri á Bologna
Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu gegn Bologna
Cristiano Ronaldo fagnar marki sínu gegn Bologna
Mynd: Getty Images
Bologna 0 - 2 Juventus
0-1 Cristiano Ronaldo ('23 , víti)
0-2 Paulo Dybala ('36 )

Juventur er með fjögurra stiga forystu á Lazio eftir að hafa unnið 2-0 sigur á Bologna í 27. umferð ítölsku deildarinnar í kvöld.

Portúgalska ofurstjarnan Cristiano Ronaldo kom Juventus yfir með marki úr vítaspyrnu á 23. mínútu áður en Paulo Dybala bætti við öðru þrettán mínútum síðar.

Dybala fékk boltann frá Federico Bernardeschi og tók gott skot fyrir utan teig. Markvörður Bologna átti ekki möguleika.

Undir lok leiksins fékk brasilíski bakvörðurinn Danilo sitt annað gula spjald og þar með rautt. Afar ódýrt spjald en Danilo er nú á leið í bann og verður ekki með í næsta leik Juventus.

Juventus er á toppnum með 66 stig, fjórum stigum meira en Lazio sem á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner