Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 23. mars 2024 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
U20 tapaði aftur gegn Ungverjalandi
Dagur Örn Fjeldsted var í byrjunarliðinu í gær
Dagur Örn Fjeldsted var í byrjunarliðinu í gær
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska u20 ára landslið Íslands tapaði öðrum leik sínum gegn jafnöldrum sínum frá Ungverjalandi á útivelli í æfingaleik í gær.


Liðin mættust fyrr í vikunni þar sem heimamenn höfðu 2-0 sigur en í gær enduðu leikar með fjórum mörkum gegn engu.

Fyrsta mark leiksins kom strax á þriðju mínútu og staðan var orðin 2-0 áður en flautað var til leiksloka. Ungverjar bættu þriðja markinu við.

Ungverjar negldu síðan síðasta naglann í kistu íslenska liðsins þegar um tuttugu mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.


Athugasemdir
banner
banner
banner