Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   sun 23. maí 2021 15:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Svíþjóð: Glódís Perla stóð vaktina í sigri Rosengard
Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rosengard 1-0 Pitea
1-0 Caroline Seger ('38)

Rosengard tók á móti Pitea í sænsku úrvalsdeild kvenna í dag.

Glódís Perla Viggósdóttir var að venju í byrjunarliði Rosengard. Rosengard sigraði leikinn með einu marki gegn engu. Caroline Seger skoraði eina mark leiksins, en Rosengard hafði klúðrað vítaspyrnu fyrr í leiknum.

Rosengard er í efsta sæti með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar, með fullt hús stiga, eftir sex umferðir. Þær mæta AIK sem Hallbera Guðný Gísladóttir spilar með, í næstu umferð deildarinnar.





Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner