Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
banner
   þri 23. júní 2020 23:12
Baldvin Már Borgarsson
Viddi Jóns: Höttur/Huginn á ekki að vera í 3. deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viðar Jónsson var stoltur af sínum mönnum eftir leikinn gegn Gróttu í Mjólkurbikarnum fyrr í kvöld en Höttur/Huginn tapaði 3-0 á Seltjarnarnesinu.

Lestu um leikinn: Grótta 3 -  0 Höttur/Huginn

„Við vissum að það er alltaf séns þegar þú mætir inn á fótboltavöll að þá eru 11 á móti 11 og leikplanið skein í gegn hjá okkur, við bara náðum ekki að halda markinu hreinu nógu lengi en við héldum áfram að berjast, með smá heppni hefðum við kannski getað jafnað leikinn.''

Hver er stefna Hattar/Hugins í 3. deildinni í sumar?

„Stefnan er og hefur verið að reyna að hífa okkur upp, við erum 3. deildar lið en mér finnst Höttur/Huginn ekki eiga að vera 3. deildar lið. Það getur tekið tíma að koma sér upp og menn verða að vera þolinmóðir.''

Verða breytingar á leikmannahópnum fyrir gluggalok?

„Já við vorum aðeins að opna augun, Steinar Aron meiddist á Sauðárkróki um daginn og það lítur ekki vel út en það er ekkert ákveðið.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar talar Viðar betur um stefnu félagsins, toppbaráttuna í 3. deild og leikinn gegn Tindastól í síðustu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner