Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 24. mars 2024 21:11
Brynjar Ingi Erluson
Trafford og Lewis koma inn í enska hópinn
Mynd: EPA
James Trafford og Rico Lewis hafa báðir verið kallaðir inn í enska A-landsliðshópinn fyrir vináttuleikinn gegn Belgíu á þriðjudag en þetta kemur fram í tilkynningu frá enska fótboltasambandinu í dag.

Markvörðurinn Sam Johnstone er að glíma við meiðsli og því var Trafford, sem er markvörður Burnley, kallaður inn í hópinn í stað hans.

Kyle Walker og Harry Maguire hafa þá báðir yfirgefið hópinn vegna meiðsla, en Rico Lewis hefur verið kallaður inn í staðinn.

Lewis er 19 ára gamall varnarmaður sem hefur verið að gera ágætis hluti með Manchester City undanfarið ár.

Walker meiddist aftan í læri í 1-0 tapinu gegn Brasilíu en hann fór af velli eftir aðeins tuttugu mínútur. Maguire er þá að glíma við smávægileg meiðsli.


Athugasemdir
banner
banner
banner