Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. janúar 2022 22:31
Brynjar Ingi Erluson
Newcastle leggur fram tilboð í miðjumann Lyon
Bruno Guimaraes í leik með Lyon gegn PSG
Bruno Guimaraes í leik með Lyon gegn PSG
Mynd: EPA
Samkeppnin er mikil um brasilíska miðjumanninn Bruno Guimaraes sem spilar fyrir Lyon í Frakklandi en Newcastle United er búið að leggja fram 40 milljón punda tilboð eftir því sem Athletic kemst næst.

Arsenal hefur sýnt Guimaraes mikinn áhuga síðustu daga og er Mikel Arteta, stjóri félagsins, ólmur í að fá hann en nú er samkeppnin mikil.

Athletic segir frá því í kvöld að Newcastle United hafi lagt fram 40 milljón punda tilboð í þennan 24 ára gamla miðjumann en Lyon er ekki búið að samþykkja tilboðið.

Guimaraes er sagður hafa mikinn áhuga á því að ganga til liðs við félagið.

Brasilíumaðurinn er mikilvægur hlekkur á miðju Lyon og spilað 71 leik, skorað 3 mörk og lagt upp 8 frá því hann kom frá Athletico Paranaense fyrir tveimur árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner