Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. mars 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo kominn til móts við portúgalska hópinn - Líklega með á morgun
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Cristiano Ronaldo er kominn til móts við portúgalska landsliðið fyrir leik liðsins gegn Slóveníu.

Roberto Martinez, þjálfari landsliðsins, gaf Ronaldo frí í fyrri leiknum gegn Svíþjóð, sem Portúgal vann 5-2.

Ronaldo ákvað að skoða sig um í Sádi-Arabíu í fríinu áður en hann kom til móts við hópinn í gær.

Sóknarmaðurinn æfði með liðinu og eru því allar líkur á því að hann spili landsleik númer 206 á morgun.

Evrópumótið í sumar verður það sjötta á ferli Ronaldo en á síðasta móti endaði hann markahæstur með fimm mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner