Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. maí 2021 18:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Leiknis og FH: Sævar Atli snýr aftur - Baldur Logi byrjar
Fyrirliðinn Sævar Atli
Fyrirliðinn Sævar Atli
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Klukkan 19:15 hefst viðureign Leiknis og FH á heimavelli Leiknis, Domusnova vellinum í Breiðholti. Leikurinn er liður í sjöttu umferð Pepsi Max-deildarinnar.

Leiknir er með fimm stig í sjöunda sæti deildarinnar fyrir leikinn í kvöld. FH er með tíu stig í fjórða sæti. Leiknir tapaði 1-0 gegn Val í síðustu umferð og FH tapaði 0-2 gegn KR.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, gerir þrjár breytingar frá leiknum gegn Val. Austmann bræður, þeir Dagur og Máni eru ekki í liðinu, Máni er á bekknum en Dagur er ekki klár í slaginn. Þá er Daði Bærings Halldórsson á bekknum. Inn í liðið koma þeir Sævar Atli Magnússon, Birgir Baldvinsson og Árni Elvar Árnason.

Logi Ólafsson, þjálfari FH, gerir tvær breytingar frá leiknum gegn KR. Inn í liðið koma þeir Baldur Logi Guðlaugsson og Björn Daníel Sverrison. Eggert Gunnþór Jónsson er á bekknum en Guðmann Þórisson er fjarri góðu gamni,

Byrjunarlið Leiknis:
12. Guy Smit (m)
2. Birgir Baldvinsson
4. Bjarki Aðalsteinsson
6. Ernir Bjarnason
8. Árni Elvar Árnason
10. Sævar Atli Magnússon (f)
11. Brynjar Hlöðversson
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Emil Berger
19. Manga Escobar
24. Daníel Finns Matthíasson

Byrjunarlið FH:
1. Gunnar Nielsen (m)
2. Hörður Ingi Gunnarsson
4. Pétur Viðarsson
7. Steven Lennon
8. Þórir Jóhann Helgason
9. Matthías Vilhjálmsson (f)
10. Björn Daníel Sverrisson
11. Jónatan Ingi Jónsson
16. Guðmundur Kristjánsson
17. Baldur Logi Guðlaugsson
23. Ágúst Eðvald Hlynsson

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Leikir kvöldsins:
19:15 Leiknir - FH (textalýsing)
19:15 KR - HK (textalýsing)
19:15 Víkingur - Fylkir (textalýsing)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner