Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. ágúst 2021 12:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kane tilkynnir að hann verði áfram
Mynd: Getty Images
Harry Kane er búinn að opinbera það að hann verði áfram hjá Tottenham á þessu tímabili.

Háværar sögusagnir höfðu heyrst um að Kane vildi fara og var Manchester City talinn líklegasti áfangastaðurinn.

„Ég verð áfram hjá Tottenham þetta sumarið og ég verð 100% einbeittur á að hjálpa liðinu í að ná árangri," skrifar Kane á Twitter í dag.

Manchester City var sagt ætla að kaupa Kane og var verðmiðinn talinn um 150 milljónir punda. Miðað við twitter færslu Kane þá eru litlar líkur á að City muni kaupa hann fyrir gluggalok.


Athugasemdir
banner
banner
banner