Bjarni Jóhannsson verður áfram þjálfari Vestra í 2. deildinni á næsta tímabili.
Þetta staðfesti Samúel Sigurjón Samúelsson, formaður meistaraflokksráðs karla við Fótbolta.net í dag.
Þetta staðfesti Samúel Sigurjón Samúelsson, formaður meistaraflokksráðs karla við Fótbolta.net í dag.
Vestri endaði í 3. sæti í 2. deildinni, stigi á eftir Aftureldingu og Gróttu, en keppni þar lauk um helgina.
Bjarni var að ljúka sínu fyrsta tímabili sem þjálfari Vestri og ljóst er að hann heldur áfram með liðið.
Bjarni er þaulreyndur þjálfari en hann hefur meðal annars stýrt ÍBV, Fylki, Breiðabliki, Grindavík og Stjörnunni á ferli sínum.
Athugasemdir