Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. maí 2021 08:50
Elvar Geir Magnússon
Þrír í viðbót draga sig úr landsliðshópnum
Icelandair
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason.
Arnór Ingvi Traustason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson.
Rúnar Már Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arn­ór Ingvi Trausta­son, Rún­ar Már Sig­ur­jóns­son og Viðar Örn Kjart­ans­son hafa allir dregið sig út úr landsliðshópnum sem er að fara að leika þrjá vináttulandsleiki.

Ekki verða kallaðir inn leikmenn í þeirra stað.

Arnór er að koma sér fyrir í nýju landi en hann gekk í raðir bandaríska MLS-deildarliðsins New England Revolution fyrr á þessu ári.

Rúnar Már dregur sig út vegna meiðsla sem hann hlaut á æfingu með félagsliði sínu, Cluj í Rúmeníu.

Þá dregur Viðar Örn sig úr hópnum vegna sóttvarnareglna í Noregi.

Ísland mætir Mexíkó 30. maí í Dallas í Bandaríkjunum og hefst leikurinn kl. 01:00 (eftir miðnætti) að íslenskum tíma. Strákarnir fara næst til Færeyja og mæta þar heimamönnum 4. júní á Tórsvelli og loks til Póllands þar sem þeir leika gegn Pólverjum 8. júní á Poznan Stadium.

Fjölmargir leikmenn gefa ekki kost á sér í þetta verkefni en í gær var greint frá því að Kári Árnason hefði dregið sig út.

*Leikmenn ekki með gegn Mexíkó, en koma inn í hópinn gegn Færeyjum og Póllandi.

Markmenn
Elías Rafn Ólafsson | Fredericia
Rúnar Alex Rúnarsson | Arsenal | 8 leikir
Ögmundur Kristinsson | Olympiacos | 17 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson | Silkeborg IF *

Varnarmenn
Birkir Már Sævarsson | Valur | 97 leikir, 3 mörk
Brynjar Ingi Bjarnason | KA
Hjörtur Hermannsson | Bröndby IF | 19 leikir, 1 mark
Hörður Ingi Gunnarsson | FH
Ísak Óli Ólafsson | Keflavík
Kolbeinn Þórðarson | Lommel SK
Ragnar Sigurðsson | 97 leikir, 5 mörk
Rúnar Þór Sigurgeirsson | Keflavík
Alfons Sampsted | Bodö Glimt | 3 leikir *
Guðmundur Þórarinsson | New York City FC | 5 leikir *
Jón Guðni Fjóluson | Hammarby | 17 leikir, 1 mark *
Valgeir Lunddal Friðriksson | Häcken *


Miðjumenn
Andri Fannar Baldursson | Bologna | 1 leikur
Aron Einar Gunnarsson | Al Arabi | 94 leikir, 2 mörk
Aron Elís Þrándarson | OB | 5 leikir
Birkir Bjarnason | Brescia | 95 leikir, 14 mörk
Gísli Eyjólfsson | Breiðablik
Ísak Bergmann Jóhannesson | IFK Norrköping | 2 leikir
Stefán Teitur Þórðarson | Silkeborg IF
Þórir Jóhann Helgason | FH
Jón Dagur Þorsteinsson | AGF | 7 leikir, 1 mark *
Mikael Neville Anderson | FC Midtjylland | 7 leikir *


Sóknarmenn
Jón Daði Böðvarsson | Millwall | 57 leikir, 3 mörk
Kolbeinn Sigþórsson | IFK Göteborg | 62 leikir, 26 mörk
Sveinn Aron Guðjohnsen | OB | 1 leikur
Albert Guðmundsson | AZ Alkmaar | 20 leikir, 3 mörk *
Athugasemdir
banner
banner