Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 26. desember 2020 18:43
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörkin: Lagleg þrenna Canos og mark fyrir aftan miðju
Mynd: Getty Images
Það var mikil skemmtun í boði í Wales í dag þegar Cardiff tók á móti Brentford í ensku Championship deildinni.

Heimamenn í Cardiff komust yfir undir lok fyrri hálfleiks þegar Will Waulks skoraði með skoti fyrir aftan miðju, sem var nauðalíkt markinu sem Aron Einar Gunnarsson skoraði með Al Arabi á dögunum.

Cardiff leiddi í hálfleik en Sergi Canos sneri taflinu við með glæsilegri þrennu í síðari hálfleik.

Fyrstu tvö mörk Canos voru glæsileg og má sjá hér fyrir neðan. Waulks skoraði aftur á lokakaflanum og urðu lokatölur 2-3, Waulks og Canos með öll mörkin.

Will Waulks ('45)
Sergi Canos ('50)
Sergi Canos ('65)
Athugasemdir
banner
banner